-!! Ester !!-

Hér Bloggar Ester,, þegar hún nennir:D

04.06.2007 13:29:51 / EsterB

Ákvað að blogga aðeins

Jæja þá er stelpan mætt! Og já ég hef ákveðið að blogga aðeins;)

Það er orðið hressilega langt síðan ég bloggaði síðast en ég hef bara ekki haft neitt af viti til þess að segja ;)

Vantar Kristrúnu :(

Hérna er svo Kristrún ;)

En það er nú ekki mikið búið að gerast hjá mér nema það að mér gekk hræðilega illa í prófunum:evil: Er að byrja í sumarfjarnámi frá Versló, sem betur fer er Elín líka í þessu þannig að við getum hjálpast að ;) *hjúkk* Vonandi gengur þetta betur en í FVA ;) *fingerscrossed* En annars er ekkert spennandi að frétta.. eina sem ég geri þessa dagana er að slasa mig og vinna ;) Ég er svo mikil brussa að ég missteig mig á vinstri og þar með er tognunni komin e-ð aftur :S ömurlegt.. var að verða góð og þá hryn ég á smettið og beygla mig alla !!

Eitt af því sem ég er búin að gera af mér sem er ekki að vinna er að fara EIN í Reykjavík að versla ;) Guð það er alveg hrikalega þægilegt að fara svona ein að versla.. enda missti ég mig alveg hressilega!! keypti hlaupaskó, takkaskó og eina ólýsanlega skó ;) tvær peysur, fjóra boli, bikini og undirfatnað ;) man ekki eftir meiru en ég er líka með minni á við gullfisk 8| Leið samt svolítið kjánalega að vera bara svona ein e-ð að vappa um með fullt fangið af pokum ;) hihi :haha: öööhhmm..

Ég og Ólafur erum líka búin að koma okkur vel fyrir uppí sumarbústaðnum þeirra ;) hehe:P held að málið sé bara að flytja lögheimilið okkar þangað ;) hehe :D þessi staður er bara yndislegur ;)

Öööhhmm.. hvað fleira ;) Jámm ég og maðurinn erum að spá í að smella okkur í sólina í lok mánaðar ;) Hlakka ekkert smá til að komast burt af þessu landi og í smá sól ;) :D Marta systir er líka að koma heim.. hlakka ekkert smá til að fá hana heim og þá verður hún bara heima hjá okkur ;) ætli hún hertaki ekki herbergi systur sinnar þar sem hún er nú aldrei heima :haha:

Eva er að sóla sig núna á Spáni =) Hún er að læra að babbla á spænsku ;) hún fer sem betur fer að koma sér heim ;)

Æjj ég nenni ekki að blogga meira. Held að málið sé að láta mömmu skila mér bílnum hennar ;) hihi :D

Verð að vera duglegri að blogga ;) Nenni þessu samt ekki :lol:

En Ester Björk biður að heilsa ;)

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 12:15:58 / EsterB

Veistu ekkert hvað þú ætlar að kjósa á laugardaginn?

 Now Playing: Sugababes - Virgin Sexy

 Mood: Jájá ég hef það alveg ágætt! Væri til í að vera að fara í fótbolta og ekki í 2 próf á föstudaginn :S

Jájá Ester er mætt og ætlar að reyna að blogga e-ð þar sem þessi síða er eiginlega alveg dauð! Það er samt ekkert mikið búið að vera að gerast hjá mér ;)

Byrjum á að óska litla gerpinu honum Árna bró til hamó með 13 ára afmælið ;) Stelpur við erum að tala um framtíðar hönk ;) hahaha;)

Prófin eru byrjuð og ég er bara búin með 2 af 6 :S LÍF203 og ÍSL303 :( Við skulum vona að ég hafi náð þessu! Ég er svo ekki að nenna því að vera e-ð að fara að taka þetta aftur! 2 próf á föstudaginn! Og þar að auki 2 erfiðustu :cry: EÐL203 og STÆ403! Hversu ósanngjarnt getur þetta verið! En maður verður bara að sætta sig við þetta!

Ég er annars bara búin að vera að reyna að læra e-ð, vinna og vera á æfingum. Lenti í því skemmtilegasta sem ég veit! Að togna í einhverju kjánalegu liðbandi við ökklakúluna! Hvernig er það hægt!? Þarf maður ekki að vera svolítið mikið spess til þess og heita kannski Ester Björk líka! Er eiginlega komin á þá skoðun!! Veit ekki einu sinni alveg hvernig ég fór að þessu! Bara einhver gella (vægast sagt EKKI gella) sem bombaði í löppina á mér og Ester reyndi að fljúga en endaði illa á vinstri og náði að rústa þessu liðbandi. Þannig að ég má ekki vera í fótbolta í 1-2 vikur sagði gellan á slysó :cry:

Now Playing: XXX Rottweiler Hundar - Þér er ekki boðið

Síðan er ég bara búin að vera vinna, var að vinna um helgina og mánudag og þriðjudag! Ekkert svakalega spennandi en þetta verður maður að gera ef maður ætlar að lifa! En ég meina þetta er alveg fínt! En fer að byrja í ruslinu þegar ég er búin með prófin og búin að ná mér í löppinni!

Um  helgina vorum ég og Óli bara uppí bústað þegar ég var búin að vinna og fórum síðan aftur snemma á morgnana! Þegar maður getur ekki sofið mikið þá er allt í lagi að vera vöknuð um 7 og komin á fætur;)

Eurovision á morgun og síðan aftur á laugardaginn ;) Hlakka heví til að sjá þetta, hef alltaf misst af þarna þáttunum með honum Eika okkar :( Síðan eru náttúrlega kosningar á laugardaginn líka þannig að ef þú veist ekki hvað þú átt að kjósa þá geriru þetta test http://xhvad.bifrost.is/ og kemst að því.

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 18.75%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 20%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 37.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 52%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%

Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Frjálslynda flokksins!

 

Þetta er það sem ég fékk út úr þessu ;) Núna held ég að hún amma mín sé ánægð með sína ;) Ekki alveg sátt með þetta með Íslandshreyfinguna!

Now Playing: Gummibear - Itt van a Gummimaci

Ég hlakka heví til þegar sumarið kemur loksins! Ætla að vera í ruslinu! Halda mér í formi og ná mér í einhverja smávægilega brúnku ;) Ekki veitir af!! Ester er eins og FLÓÐLJÓS hún er svo HVÍT!! Þótt að ruslið sé kannski ekki alveg það skemmtilegasta sem ég veit um þá get ég bara ekki hugsað mér að eyða þessum fáu sólardögum ársins inni í Krónunni og verða bara hvítari en ég nú þegar!

En skólablaðið EnniMáni er loksins komið út ;) Og það er alveg ógeðslega flott þótt að ég segi sjálf frá ;) Það er klikkað og því er dreift í 300, 301, 310 og 311 :) Í 4000 og e-ð eintökum sem er náttúrlega bara snilld ;)

 

En ég held að það sé ekkert fleira sem ég ætlaði að segja hérna!!

 

Ester ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 13:13:43 / EsterB

Held að það sé kominn tími á eitt stykki blogg

 

þá er komin tími til þess að blogga held ég og já ég hef eitthvað um að blogga í þetta skiptið

margt búið að vera að gerast. páskafrí, akureyri og margt fleira.

okee.. mín fór ekki til kúbu sem ég veit ekki alveg afhverju ég lét ekki bara vaða. þetta er náttla bara rugl að ég hafi ekki farið. katrín mín er búin að eiga þennan líka sæda litla prins.. kannski ekkert voðalega lítill 18 merkur en hann er samt ekkert smá sædur og guð hvað ég er fegin að hann er loksins kominn ;) fór í fermingu og svo bjó ég náttla í bústaðnum með ólafi mínum ;) páskafríið einkenndist því af vinnu, svefni og rúnti í og úr bústaðnum. borðaði reyndar páskaegg ;) (ojj hvað það var gott). skólinn kominn á skrið eina ferðina enn og það er allt að verða snar hérna. prófin að byrja og lætin í hámarki.

akureyri: fórum á akureyri núna á laugardaginn, lögðum af stað frá akranesi um 1 og frá borgarnesi um 2. ferðin var alveg snilld en djöfull er þetta langt :P polo-inn var ekki alveg að gera sig í því að komast upp allar brekkurnar sem voru á leiðinni þannig að það var mikið um framúrakstur þar sem polo-inn var ;) hehe:D þetta var bara snilld.. og á leiðinni niður eina brekkuna þá var polo-inn að virka,, kannski aðeins of mikið ;) hehe *hóst* þegar við komum á akureyri var það aðalvandamálið að finna hvar amma hennar fríðu bjó þar sem fríða okkar hafði ekki komið á akureyri lengi. síðan þegar við komum þá hafði konan verið að elda pottþétt allan daginn þar sem hún var búin að elda fyrir heila herdeild. það var ógeðslega góður matur: kjúklingur og hrísgrjón, salat og sósa og síðan var náttúrulega eftirmatur... ís með heitri súkkulaði sósu. borðuðum með frænkum hennar fríðu sem voru heví næs ;) fórum síðan að gera okkur klárar fyrir söngkeppnina þegar við vorum búnar að éta okkur afvelta ;) þurftum að standa heví lengi til þess að komast inn í salinn þar sem það var ekki búið að opna þegar við komum. þegar við loksins komumst inn þá þurftum við að skipta endalaust um sæti þar sem það átti að fylla þetta fyrst en steinunn eik reddaði þessu ;) þar sem við vorum næst stærsti hópurinn og sá stærsti ekki frá akureyri :haha: djöfull var ógeðslega heitt þarna inni. og við vorum í þykkum hettupeysum. þetta var rugl mikill hiti og tók náttla 3 tíma or some. samt fínt;) fórum síðan aftur heim til ömmu hennar fríðu og skiptum um föt og gerðum okkur ennþá sætari (Guðrún, Kristrún, Ester, Birna og Hólmfríður). var ekki búin að segja hverjar þetta voru. ákváðum að kíkja aðeins á rúntinn áður enn við fórum á ballið. við erum í mesta sakeysi að fara upp gilið (sem er fokking bratt) og það var einhver heimamaður.. greinilega sem stoppaði bara og fríða greyið varð að stoppa.... og gat síðan ekki tekið af stað.. jújú gott fólk við vorum búnar að stoppa rúntinn á Akureyri og ekki nóg með það.. þá varð að ýta okkur svo að við kæmumst upp og svo að fólk kæmist framhjá okkur. ákváðum síðan að fara bara niður rúntinn í staðinn:) fórum síðan á ballið sem var gott ;) DJ palli og Buff.. buff eru góðir ;) ekki mikið um slagsmál miðað við fjölda. en ég meina það eru samt alltaf slagsmál. ballið var búið um hálf 4 fórum þá að fá okkur að borða og rúnta. (ekki brekkuna:haha:!) komum heim um hálf 5. fórum þá að sofa. þegar við vöknuðum þá var konan búin að baka skonsur og fylla borðið í eldhúsinu af mat:O pælum aðeins í dekrinu. tókum saman dótið okkar og lögðum af stað heim milli 12 og 1. komum á akr um 5. það var ógeðslega gott að komast heim. mjög næs að slaka aðeins á og sofa;)

Guðrún orðin 18 og hún bauð í þennan líka flotta dinner á þriðjudaginn ;) heví næs.. sátum saman stelpurnar og borðuðum og töluðum í 4 tíma ;D næs :D

en ég gleymdi að klára þetta blogg ;)

Fór á hestbak í gær,, djöfull var það ógeðslega næs ;) ég elska þessi dýr meira en allt.. eða svona næstum ;):*:*

nenni þessu ekki :D

 

Ester's OUT (20.apríl.2007)


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 11:12:08 / EsterB

KÚBA

Ohh váá hvað ég væri til í að vera að fara til kúbu núna um pákana :haha: rakst alveg óvart á þetta.. kúba í 2 vikur;) HOW NICE WOULD IT BE? shit það væri snilld!!! en ég á nú ekki mikið af peningum til þess að smella mér í heimsreisu til kúbu :cry:

en þar sem ég hef ekkert að gera í eyðunni minni þá er ég að eyða tímanum í það að blogga og skoða utanlandsferðir! þar sem mig langar svo ógeðslega mikið til útlanda..!!!

helgin var samt bara róleg.. vinna lau og sun,, síðan bara e-ð að rúnta og hanga með ólafi! =* og núna er enn ein vikan byrjuð eeeen þetta er síðasta vikan fyrir páskafrí! hvað á að gera í páskafríinu?? Kúba eða vinnan... hvort ætli það verði!!?? VINNA! svo að maður eigi peninga til þess að fara til útlanda svona áður en maður drepst í vinnunni!!

en guð hvað ég er ekki að nenna því að vera að blogga.

fann þessa líka guðdómlegu mynd og ætlaði að deila henni með ykkur en neinei.. talvan vill bara ekki hafa mydnir í þessu bloggi þannig að við verðum bara að sætta okkur við það!! Lífið getur verið helvíti súrt þegar það tekur sig til!!

But....

Miss.Ester has left the computer

*and you'll catch up with her next time she sits infront of the computer screen and has time to make one of her great blogs!*


» 11 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 12:00:07 / EsterB

Ester Veika !!

 

Love`s when . . . . you miss him
even  before he leaves . When  you

could
  listen to him talk all night  and
never
  get tired of hearing his voice
When
just the sound of his name
sends chills down your spine
and you see his smile
the   second you
close your
eyes

 

Ohhh sit heima veik:S þoli það ekki... líður eins og ég sé föst í búri núna,, má ekki fara út, get ekki farið í vinnuna og ekki neitt:evil:

helgin mín einkenndist af slappleika.. fór samt á árshátíðina en fór snemma heim, var komin með hita og skemmtilegheit 8| ólafur minn kom að sækja sína ;) ;* takk fyrir það ástin :*

sunnudagur... var að fara í hestaferðina til þess að falla ekki í íþróttum,, ekki það gáfulegasta í skítakulda með hita!!! en þetta verður maður að gera!! fór síðan í 2 fermingar! eða var í hvorri í korter.. bara til þess að segja hæ og bæ:S ömurlegt.. var líka eins og fífl til fara í gallabuxum og sisters-point peysunni minni og myndasögu kawasaki skóm.. hversu smart getur maður verið.. allir heví fínir og ég eins og drusla ný skriðin úr rúminu!!!:^)

en ég nenni engann veginn að blogga meira.. er að pæla í að fara í sturtu og hressa mig aðeins við:P

eitt að lokum allir að kíkja á þetta myndband ;P

http://www.youtube.com/watch?v=XmlfuxAWzvU

Ciao

Ester Björk


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 10:24:38 / EsterB

Söngvakeppni NFFA

 

 Jújú það líður ekki langt á milli blogga núna;) en ég varð bara að koma með eitt blogg ;P

 

í gær var söngvakeppnin í skólanum og voru ágæt atriði svosem! en það var eitt atriði sem stóð svona líka hressilega uppúr!!

ÁLFHEIÐUR OG ÁSTA MARÝ !!! :haha: =* =*

Skvísípæs <3

ég fæ sko bara hroll við að segja þetta ;P þetta var það flottasta í langan tíma ;)

guð ég var með hroll allan tímann ;)

og auðvitað unnu þær þetta ;)

*hrollur,hrollur,hrollur*

 

Innilega til hamingju með þetta stelpur mínar ;):*:*:*:*:*

og síðan er bara að vinna keppnina á Akureyri! :haha: :*:*:*

en innilega til hamingju aftur :* <3


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 12:51:43 / EsterB

Árshátíðin og margt fleira *vonandi*

 

Já góðan og blessaðan!

þá er stelpukindin mætt á svæðið eina ferðina enn.. en þar sem ég er ekki að standa mig í því að blogga þá fannst mér ég þurfa að blogga aðeins. eeen bara smá ;) fannst svona líka tilvalið að eyða íslenskutíma í það að blogga smá :P

síðustu vika var heví skemmtileg ;):* mánudagurinn var bara venjulegur dagur en á þriðjudaginn þá hófust opnir dagar :haha: en ég, kristrún, guðrún og fríða eyddum okkar dögum í það að vinna í þessu blessaða blaði okkar sem er að fara að koma út btw ;) *happy,happy,joy,joy* og við vorum að safna auglýsingum og bara þannig sull.. en þetta var ógeðslega gaman!! :P:* villa og rósa voru líka mikið með okkur ;)

síðan er ég bara búin að vera á æfingum og hanga heim og þannig ;P *the same old, same old*

á fimmtudaginn var síðan hinn langþráða ÁRSHÁTÍÐ NFFA :haha: Þetta byrjaði á mat upp í skóla;P þar var Egill kokkur búinn að galdra fram þennan líkaflotta mat ;P og síðan voru skemmtiatriði og svona ;P klikkað uppistand að mínu mati ;P síðan fórum við til Evu og þar var teygað Passúa ;) *kann engan veginn að skrifa þetta8)* síðan fórum við eiturhressar á ball með pöpunum og DJ-unum okkar,, Gústa, Hjalta og Bjarka ;P þeir eru drullugóðir enda var ég bara útí porti allan tímann,, nema einhverjar 5-10 mín sem ég var inná pöpunum ;P síðan fór ég heim að sofa og guð hvað það var gott að sofa ;) hef ekki sofið svona mikið í ár og öld :$ fór síðan í vinnuna á föstudaginn,, var búin að lofa danna að vinna fyrir hann! en neinei ég þurfti að mæta aðeins fyrr eða klukka 3 og var að vinna til hálf 9 og átti að vera mætt í leik klukkan tuttugu mín í!! hvað er málið með að vilja ekki hleypa manni fyrr heim!:evil: en síðan var enginn leikur.. guð sem betur fer.. 2.flokkur var allur á ballinu á fimmtudaginn og allar að drekka þannig að við vorum svona frekar MIKIÐ ekki að standa okkur!! enginn okkar! þakkaguði fyrir það að ÍBV stelpurnar komust ekki!;P

síðan var ég að vinna um helgina,, 9- hálf 7 á laugardaginn og síðan 9-að verða 6 á sunnudaginn.. var send í Krónuna í RVK :o8| þar sem það vantaði svo.. guð hvað ég er fegin að vera að vinna á akranesi.. það er svo geðveikt gott skipulag hjá okkur ;) dó líka þegar ég kom heim svaf frá að verða 7 til að verða 10 ;P ohh það var svo næs ;D en var samt ennþá þreytt!! talandi um langþreytta manneskju!

mánudagurinn var þreyttur greyið,, skólinn, vinnan og sofa!! þetta er það sem líf mitt snýst um!! sama er að segja um þriðjudaginn!!

í dag er síðan söngvakeppnin í skólanum.. það er verið að velja hana/hann/þau/þær/þá sem eiga að keppa fyrir hönd skólans í söngvakeppni framhaldsskólanna núna í apríl ;P ætla að fara með Kristrúnu, Birnu, Rósu, Villu, Elínu og kannski Evu að kíkja á þetta:P Ásta Marý og Álfheiður eru að fara að syngja dúett;) gangi ykkur vel elskurnar :*

En ætla að setja inn snilld eina sem ég og strúní gerðum í íslensku ;P haha :D

Smásaga

 Einu sinni var maður sem var að koma frá Noregi til Íslands, þessi maður hét því fornfræga nafni Ari Ómagason og ákvað að byggja bæ. Hann kom með fullt af húsdýrum með sér. Þessi maður var feitur höfðingi sem vildi ekki láta kónginn stjórna sér, þess vegna fór hann til Íslands. Hann kom með konu sinni, Gróa Þórsdóttir og 10 börnum sínum. Hann byrjaðir á því að drepa þann sem átti landið sem hann kom á, svo tók hann konuna hans og gerði hana að ambátt hjá sér og börnin urðu þrælar. 

Dagur í lífi hans

 

Hann byrjaði örlagadaginn á því að þvo sér í framan. Síðan gengur hann niður í skipi sínu og sér þennan líka fallega bæ. Hann ákveður að þennan bæ verði hann að eignast. Hann tekur vopnin sín og fer með mönnum sínum(börnin hans) og drepur eigandann sem hét Þorsteinn græni. Síðan er barið að dyrum. Þar stendur maður og spyr um fyrrum eiganda bæjarins. Maðurinn kveðst heita Jónas og er bróðir eigandans. Ari svarar: “Hann er því miður rúmfastur sem stendur og vill ekki við nokkurn mann tala.” Og þá hefur maðurinn eitthvað um málið að segja. Hann segist verða að ná tali af honum og gengur inn. Maðurinn gengur að rekju bæjareigandans og finnur hann alblóðugan og höfuðið liggur á gólfinu. Þá kveður Jónas: “Hvað gerðist hér?” Ari svarar: “Hann rak höfuð sitt upp í lofti er hann reis úr rekju sinni þennan morgun. Og það hraut af.” Jónas trúir því og segist ætla að passa sig á þessu í framtíðinni svo að það fari ekki fyrir honum eins og stóra bróður. Síðan gengur hann með bróður út úr bænum og skellir honumá hestinn og hausinn í bakpokann og heldur heim á leið. Ari og fjölskylda halda áfram að koma sér fyrir. Þegar þau gengu til rekju þetta sama kvöld fundu þau fyrir afturgöngu Þorsteins sem var alltaf að leita að höfði sínum. Hann fann hann ekki svo að hann reif hausinn af þeim öllum!

 

Guð minn góður hvað þetta er mikið rugl ;P 

En æjj ég hef eiginlega ekkert meira að segja!

tíminn líka búinn!!

 

Later ;*

Ester


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 13:14:56 / EsterB

Just Me!!

Júhú !! :haha:

Ester er mætt á svæðið ;) ég er bara engan veginn að standa mig í því að blogga! :(

en ég ætla að reyna að breyta því! þar sem mín ástkæra stóra systir er blogg-brjálæðingur, þá get ég ekki verið minni manneskja en hún ;) hún verður að vita hvað litla barnið er að gera af sér! ;)

fór í Adrenalíngarðinn á fimmtudaginn með íþróttum ;) ógeðslega gaman eina slæma var að það er virkilega kalt 64° norður í Febrúar ;P hehe:P fór í risaróluna ;P hef sjaldan öskrað jafnmikið og hneggjað úr hlátri í leiðinni:$ klifruðum upp einhvern staur og ég gat bara ekki klárað þetta! sorry Guðrún að ég geti ekki verið svo hardcore eins og þú :klikk: og síðan þurftum við að klifra upp e-n vegg og e-ð þannig ;) það var samt alltof gott að komast inní rútuna og hlýja sér :D

föstudagur = skóli, æfing og síðan bara e-ð að hanga (minnir mig)

laugardagur = vinna frá 9:00 - 20:15 þakka fyrir pent, fór síðan í mat hjá Ríkey, hjálpaði henni ;P fór heim í sturtu, rúntur með Evu, keyptum ís og blöztuðum HRESSILEGA, prufaði bílinn hann Ella ;P svalur bíll og ég er náttla bara svalur bílstjóri 8)8) gerist ekki betra ;) fór síðan til Óla, sofnaði að verða 4.

sunnudagur = mætt í vinnuna rétt fyrir níu, öfga hress og með svaka greiðslu 8|var að vinna til 4 ;) fór til Óla (heim) fór heim og sá að húskofinn sem kallast lögheimili mitt var í rúst :o held að pabs hafi verið í vonduskapi og ráðist á vegginn í forstofunni niðri:lol: þau hafa líka ákv. að flytja prinsessuna úr stóru svítunni inní kompu! þar sem hún er aldrei heima :lol:

mánudagur = skóli, éta, fór og valdi mér síma, sit núna í líffræði-tíma ;) geggjað stuð auðvitað :D og síðan er stærðfræði eftir og síðan eyða og síðan er það eitt af mínum heimilum ..... KRÓNAN - þín lágvöruverslun ;) ætla að vera ógeðslega dugleg og fara í þrek í kveld ;) og klára eðlisfræði heimadæmin sem ég var búin að gleyma :$:$

en ætla að drullast til þess að glósa e-ð svo að ég falli ekki í þessum áfanga :S

ciao =*

Princess Ester Has Left The Building :!:


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 10:17:09 / EsterB

Mikið var!

Mín er ekki að standa sig í því að blogga þessa dagana :S

það er alveg hrikalega langt síðan ég hef bloggað og það er nú ýmislegt sem maður hefur verið að bralla ;P

er búin að fara í klifurhúsið með íþróttaáfanganum. Keyrði til RVK ;P og það lifðu það allir af :D ég, birna, guðrún, fríða og kristrún fórum laugardaginn 3 feb í klifurhúsið og klifruðum úr okkur rúnkvöðvann :haha: og fórum síðan á IndóKína að borða;P LOVE'S IT!=* fór síðan aftur í RVK á sunnudeginum með Óla =* tókum Evu með okkur og hún fór og hitti hörpu. við óli vorum bara eikkað að labba um kringluna og jújú stelpan eyddi smá peningum;) keypti kawasaki skó, takkaskó, peysu, legghlífar, sokka og gloss :) var bara ekki í stuði til þess að vera að versla þannig að ég ætla bara að fara aftur um mánaðamótin og eyða ennþá meira ;P síðan er það bara búið að vera skóli og fótbolti og vinnan og náttla hanga með Óla og vinunum ;P=*

t.d. Hrúntur með Stínu skvís =* og rúntur með birnu, evu og óla ;P þar sem ungfrú Birna fór á kostum :haha: og hanga með Steinunni í vinnunni og okkar víðfrægu eftir-leik-rúntur!:P

En er að pæla í að taka rólega helgi núna og fara í sumarbústað með Óla og slaka vel á í pottinum og sofa úr mér allt vit ;)

en ég nenni ekki að blogga meira um ekki neitt ;P verð að finna eikkað í góðan pistill a la Ester ;P

Síjú L8ter ;P


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 22:20:54 / EsterB

Put Your Hands Up!!

 Núverandi tónlist = Ciara feat Missy Elliott - 1,2 step

Núverandi skemmtun = Blogga =P

 

"The Princess is here,,

 

Góðan og blessaðan góðir hálsar;)

 

jújú prinsessan gat gefið sér smá tíma í það að blogga um allt og ekkert eins og henni er einni lagið :D

Spennandi líf sem ég lifi. Þetta snýst nú eiginlega bara um skólann, æfingar, vinnuna og bílprófið og síðan þann besta í heimi :*

en ég skal vera svo góð og segja ykkur frá því helsta sem á daga mína hefur drifið :D

Stelpan er komin með bílpróf þannig að ég sem eyddi ekki alltof miklum tíma heima hjá mér er bara aldrei heima :D haha ;)

ég er farin að mæta aftur á æfingar eftir hræðilegt tímabil þar sem ég hafði bara ekki tíma vegna þess að mín fékk vinnualkakast!:evil: en sem betur fer er það að lagast ;) var kominn tími til þess að fara að hrista mitt tonn af spiki!!

Föstudagur = Vaknaði eiturhress í skólann, í góðu paninki og læti! hélt í alvöru að ég myndi enda með hjartaáfall af stressi! átti eftir að skil 3 verkefnum sem ég gerði á þessum degi, og fara í skautaferð, kaupa miða á ballið (sem var btw ömurlegt!) og hjálpa Ríkey og fara í sturtu og gera mig klára! talandi um að vera á barmi taugaáfalls, hjartaáfalls og köfnunar! en þetta hafðist með hjálpa minna frábæru vina :* þið björguðu mér fyrir horn í þetta skiptið =* elska ykkur <3 skautaferðin var mjög fín, heldur í lengri kantinum! en þetta reddaðist. fórum heim kristrún hjálpaði mér með síðasta verkefnið! komum heim kl 7 og ég átti að skila þessu verkefni fyrir 8! *this close* en þetta reddaðist :haha: fór síðan og hjálpaði Ríkeyju, Gaui gaf mér heví góðan kvöldmat;) mmm *sleikir útum* og kom síðan heim og fór í sturtu! gerði mig sædari ! hahahahaha!! fór síðan og rúntaði með gellurnar og við fórum síðan á ballið! þetta ball var eitt það agalegasta sem ég hef farið á! Góð tónlist og svölheit! :D en síðan voru einhverjir ógeðslega miklir fávitar sem þurftu að skemma allt!! við erum að tala um að ballinu hafi verið SLÚTTAÐ!!um hálf 2! þá var búið að fara með 3 uppá löggustöð! allavegana einn í handjárnum!!! góðan og blessaðan! hvað er í gangi með fólk!?!?! brotnar silljón rúður! og það sem var verst var að það voru gaurar sem stukku á bíl og skemmdu hann eikkað!!!!!! JESÚS! hvað er að fólk! er ekki hægt að gera neitt án þess að það fari allt í háaloft!?!?! en jæja hvað um það,, það verða því miður ekki fleiri böll í FVA á næstunni það er one thing for sure!:cry::evil: fór smá á rúntinn og fór síðan "heim" að sofa :D sofnaði um hálf 6!

Laugardagur: vaknaði HRESS eftir um 3 tíma svefn og skaust í vinnuna! guð minn almáttugur hvað ég var ógeðslega mygluð! það var nú bara eiginlega ekki hægt að horfa á mig án þess að hlægja eða verða hræddur! *comon ég er alltaf falleg* fór síðan að hjálpa Ríkey minni og fór síðan "heim" =*

Sunnudagur: Fór í vinnuna! jújú HRESS að vanda :lol: fór í vinnuna, heim í sturtu og fór að heimsækja ömmu gömlu :* fór þaðan til Ríkeyjar *held að ég þurfi bara að flytja til hennar :D* fór síðan heim að sofa :*

Mánudagur: Vaknaði enn einu sinni EITURHRESS! og fór í skúlen! Fór heim í eyðunni og sótti bílinn :D fór aftur í tíma og fór síðan í vinna eftir skóla :D var að vinna til 8 fór síðan og skutlaði steinunni og helgu heim :P fór síðan í sturtu og hérna er ég núna :D *einhverjir segja víst mikið var*

Núverandi tónlist = Cassie - Long Way To Go

Ætti að vera að læra en ég er því miður bara ekki að nenna því! Eðlisfræði 203 er bara því miður ekkert svakalega spennandi fag! 8| en svona er þetta bara!

böööt! mio er að pæla í því að láta sig hverfa :P fara uppí rúm að kúra sér :D

 

Kannski maður verði duglegri að blogga :D

 

The Princess is Out!

 

Undirrituð:

Ester Björk Magnúsdóttir

Núverandi tónlist = Fedde Le Grand - Put Your Hands Up


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 22:18:58 / EsterB

BÍLPRÓF!?!?!

Hallúw :D

Jújú stelpan er mætt með eitt stykki blogg fyrir hana Guðrúnu sína =*

En það er voðalega lítið búið að vera að gerast hjá mér :P bara vinna, sofa, skólinn, borða og hanga :P same old, same old :D

Eeeeeen reyndar er farið að styttast í það að prinsessan fari að keyra fólk niður og drepa:P náði bóklega með 2 villum :P 0-2 :D nokkuð gott ;) en ég er að fara að taka bílprófið verklega á þri !!!!8|8|8|8|8|8| og ég hef ekkert verið að keyra.. fór í ökutíma á fös í þessari líkagóðu færð :S en það er samt bara gaman að keyra í svona veðri og er að fara í annan a morgun og síðan er það bara bílprófið!!!!!!!!!

oooooog þá verður nóg að gera hjá Taxi-Driver Ester :haha:

Skólinn byrjaður og ég er strax komin með leiða á þessum blessaða skóla og stundataflan er alveg hrikalega leiðinleg!!!! Fögin þ.a.s.

En hef ég eikkað meira að segja!!?!?!?!?!?!?!?!?!

Æjj ég nenni því ekki!

En elska ykkur :*

Ester Björk --->Taxi Driver :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 01:01:26 / EsterB

Ekkert

Vildi bara segja Gleðileg jól og allt það ;*

ég er ekki að nenna að blogga :P hef ekkert að blogga um:P er alltaf í vinnunni8| og það gerist nú ekki alltof margt þar :S

En Ester er farin :P


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 21:47:19 / EsterB

EKKERT!

Now Playing = Kelly Clarkson - Addicted

Mood = Bara nokkuð hress :haha:

Blogg frá Ester ;)

Þetta blogg minnir óneitanlega á Drekinn-bloggið úr Svínasúpunni! haha!! sounds FAB!:*

lofa að ég blogga meira spennandi seinna ;)

Mánudagur = Stærðfræði 303 próf :( hanga með Villu ;)

Þriðjudagur = Líffræði 103 próf :(, fór í Rvk með Guðrúnu og Villu ;) fórum í Kringluna og Smáralind! Keypti 2 boli, 2 peysur og 2 nærbrækur ;) suss bara tvennt af öllu! fórum síðan að heimsækja ömmu hennar Guðrúnar, hún spáði fyrir okkur ;) það var heví gaman ;) ég á eftir að fara í langt ferðalag og eignast peninga og eikkað því um líkt ;) alls ekki slæmt ;) var síðan bara að rúnta með Villu eftir að við komum á Skagann ;)

Miðvikudagur = Enska 303 próf :P hanga með Villu ;) *við eigum okkur ekkert líf nema hver aðra :*:*

Fimmtudagur = Vinna í Ruslinu! eiturhress! það hefur verið verra! en síðan fór ég heim í sturtu og smellti mér í bíó í RVK á Bond ;) með Villu (kemur á óvart), Bjarka Dude og Óla ;):* þetta er bara helvíti góð mynd ;) Við villtumst í RVK! er það hægt! reyndar er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi ;) heim að sofa kl 3 ;)

Föstudagur = Átti að mæta í Ruslið en ég var bara svooo þreytt!:P :lol: fór síðan að vinna í Krónunni kl:11:P var að vinna til hálf 6 fór heim og lét mér leiðast:P Fór til Evu (sem heldur því fram að hún sé æðisleg og sæd :lol: leyfum henni að lifa í draumi ;):*), fórum að kaupa ís með Elínu! vorum síðan bara að spjalla og þannig ;) fór heim og DÓ! fyrir 1! Var vakin við símtal að verða 2 og sofnaði ekki aftur fyrr en 3:P

Laugardagur = Vaknaði til að fara að vinna í Krónunni! var þar til 2 ;) stutt ;) fór heim í sturtu og smellti mér til Birnu ;* fór síðan heim að sofa! guð hvað ég hafði ekkert að gera. fór smá rúnt með Villu :* og var síðan bara að hanga heima.. Sofa yfir Dexter og eikkað þannig rugl ;) jámm! ;) :$

Sunnudagur = vaknaði hress að verða eitt! búin að vera að læra, horfa á Nágranna og ekkert annað!

GUÐ HVAÐ ÉG NENNI EKKI AÐ BLOGGA MEIRA! ÞAR SEM ÉG HEF EKKERT TIL ÞESS AÐ BLOGGA UM!

Ester:*:*

 I wanna be with you,
gotta be with you,
need to be with you.

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 22:10:31 / EsterB

Fyrsti í Aðventu & Flirt ;)

Now Playing = PussyCat Dolls - Flirt

Mood = Prófkvíði8|!! og þreyta!

 

Hellúww hellúww :D

Það er komin desember ;)8| sem þýðir bara eitt! jólapróf og jólagjafir 8|8|8|. Það er kominn fyrsti í aðventu og ég er ekki búin að læra neitt á þessari önn :cry:

Eeeeeeeeen er ekki málið að tjá sig um helgina?:D

Föstudagur = Mætti í skólann að verða 11 :haha: *sweeeeet* og spekkaði Dimmisjón annarinnar ;) pretty awsome :D fór síðan í stærðfræði tíma! TILGANGSLAUST!!!! en fór síðan með stelpunum að versla fyrir kveldið og heim að sækja peninga fyrir miðum og síðan biðum við í röð for ages.. að mínu mati :evil: en fengum miða :haha: síðan vorum við bara eikkað að dunda okkur.. ég, Guðrún og Kristrún :* fengum okkur að borða á Galító :D Biðum LENGI! fórum síðan heim að gera allt klárt fyrir "get togetherið" hjá mér :D heví mikið djamm á okkur:P vorum heima hjá mér með bollu og að horfa á X-Factor ;) haha:P hversu leim getur maður verið? híhíhí:D fórum síðan á ballið ;) ég og Eva lentum í smá sjokki! týndum öðrum miðanum :cry: og ég var sko næstum farin að grenja ég var svo sár en við fundum hann :haha: sem betur fer :haha::haha::haha: *fjúff*

Ballið = Það var bara mjög gott ;) var bara með henni Guðrúnu minni og ég var ógeðslega stillt ;) *aldrei slíku vant* haha.. án efa það fyndnasta á ballinu var GunGun! haha:P kom til mín og Guðrúnar og spurði hvort við vildum ekki slummast og hann myndi taka mynd af okkur ;) *haha! Guðrún var edrú BTW!* og við bara NEI! en hann tók samt mynd af okkur :) gat ekki sleppt því að mynd svona fallegar stúlkur ;) hver getur það ?? :P

Laugardagur = Svaf til að verða 10 þá vakti mamma gullið sitt:P og ég gerði mig klára og pabbi skutlaði mér í Skútuna þar sem ég ætlaði að taka strætó uppí Mosó klukkan 10:27.. en NEINEI! það var ekki strætó svo ég varð að hringja í pabba og hann varð að skutla mér uppí Mosó svo ég gæti verið komin uppí Krónu á réttum tíma *Er komin með vinnu í Krónunni á Skaganum ;)* þannig að ég kom á alveg réttum tíma allt pabba að þakka :* Var að vinna frá 11-3 og ætlaði þá að fara í Borgina! og hitta Villu sædu :*og tvo fæn fola ;) en það varð ekkert úr því ! þannig að ég fór bara að tjékka á strætó og þá komst ég að því að hann fór ekki fyrr en 16:30 og klukkan var ekki einu sinni orðin hálf 4! hringdi í M&P *tjékka á þeim* og þau vildu nú bara ekkert tala við mig for god sake ! þannig að ég fór bara í Snæland og fékk mér að borða og las Myndbönd Mánaðarins ;) síðan hringdi Mams og þá var hún í næsta hún :D *Bónus er hennar annað heimili er ég farin að hallasta að :whut: en þau pikkuðu Ze Prinzessa upp og keyðu með mig heim ;) fínt að þurfa ekki að vera einn í einhverjum fokkin strætó ;) fórum heim að dreyfa út jólarósunum sem UKÍA var að selja ;) enduðum síðan í kökum og læti hjá Ósk og Torfa ;) *sweet* hafði reyndar ekki gott af þessu en WHO CARES!? hehe heim og sótti skóladótið og vappaði yfir til Gunna og Kadí og passaði Daníel DÚLLU! Jisús hvað krakkinn er mikið rassgat ;) síðan kom Villa.. við ætluðum að læra en það var ekki alveg að gerast ;) vorum bara að borða nammi, horfa á Princess Dairy\\\'s 2 og leika við Daniel ;) Villa yfirgaf síðan samkvæmið og ég var bara eikkað að leika við Daniel og horfa á TV-ið :P Við sofnuðum bæði ;) og síðan komu Gunni og Kadí og Villa kom að sækja Ester sína ;* Vorum að rúnta með Sigurjóni og Kára :) fór síðan bara heim að sofa :lol:

Sunnudagur = svaf til hálf 1 :D ohh hvað það var NÆS ;) fór bara upp að borða og horfa á TV-ið :P síðan kom Villa til mín og við ætluðum aftur að læra en það var ekki að ganga ;) horfðum á Nágranna og fórum síðan að ljósrita jöfnublaðið hennar og prófið hennar Birnu ;) sóttum Birnu og Prófið ;) fórum síðan og fengum okkur að borða ;) Síðan yfirgaf Birna okkur og ég og Villa vorum bara að rúnta í dag ;) og síðan fór ég heim að borða og ætlaði að læra en fór í talvið og talaði við Kristrúnu í 1&1/2 tíma áðan :lol: ;) hehe og núna er ég hér! og ætti að vera að læra fyrir stærðfræðipróf 8| en ég nenni því ekki! Fall?? neinei fer að læra eftir smá ;)

Mánudagur = vakna, sturta, læra aðeins meira, síðan próf :$8|:S síðan heim að læra fyrir Líffræðiprófið :cry::cry::cry::cry:

En ég held að málið sé að líta á stærðfræðina!? ekki satt?

Ester !


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 18:56:07 / EsterB

Swing!

1. Miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean: Dirty?

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra? Langar þér í nýra??

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
 
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Portúgal =*
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1690 dögum
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 7 ágúst